04. júlí
Sumarferð Skólafélagsins 2010
Föstudaginn 9. júlí næstkomandi verður haldið í Sumarferð Skólafélagsins. Þetta sumarið verður tjaldað í Borgarfirði á tjaldstæðinu við Mótel Venus, sem er staðsett rétt hjá Borgarnesbrúnni. Þar verða MR-ingar með lautir út af fyrir sig.

Fullyrt er að þarna verði gleðin við völd þetta kvöldið og því ætti enginn MR-ingur að láta þessa ferð framhjá sér fara! Gist verður í eina nótt en þarna verða íþróttaleikar á vegum Íþróttaráðs Skólafélagsins, brekkusöngur verður sunginn í nætursólinni ásamt fleiru.

Mælst er til þess að fólk mæti í Borgarfjörðinn upp úr kl. 17. Tekið skal fram að enginn matur verður á vegum Skólafélagsins heldur sér hver og einn um sig. Á staðnum eru engin grill en hyggist fólk nota einnota grill skal það forðast það svíða jörðina. Ætlunin er jafnframt að við MR-ingar skiljum vel við tjaldstæðið að öllu leyti daginn eftir.

Skráning í ferðina fer fram með tölvupósti á peturmarteinn@mr.is. Þar skal koma fram nafn, bekkur (síðasta skólaárs) og farsímanúmer. Verð er 1000 kr. á manninn. Ferðin er eingöngu hugsuð fyrir MR-inga og fyrrum MR-inga.
Greitt er við komu í reiðuféi.

Sjáumst í banastuði þann 9. júlí!

Með kveðju,
Skólafélagsstjórn
Einar Lövdahl Gunnlaugsson