14. júní
Þrasið
Þrasið haldið aftur í sumar!Ræðukeppnin “Þrasið” sem haldin var í fyrsta sinn við góðar viðtökur síðasta sumar verður haldin á nýjan leik í sumar. Keppnin er sjálfboðastarf áhugamanna um mælskulist og ræðumennsku og er hún hugsuð sem dægradvöl á erfiðu efnahagssumri fyrir atvinnulitla, námsmenn og einfaldlega alla þá sem hafa gaman af ræðumennsku. Ekkert of formlegt, bara skemmtun.
Síðasta sumar kepptu gamlar ræðukempur, ræðumenn og áhugamenn úr menntaskólum landsins, grunnskólaskörungar og skátar sín á milli, svo fátt eitt sé nefnt. Keppnin var haldin í Austurbæjarbíói en úrslitin voru háð úti við á Menningarnótt, á taflborðinu við Lækjargötu og heppnaðist það með eindæmum vel.
Skráning er hafin á facebook-hóp keppninnar og á viktororri@gmail.com og stendur hún til 20. júní næstkomandi. Aðstandendur hvetja alla sem hafa áhuga á ræðumennsku og/eða lítið að gera í sumar til að skrá sig til leiks og mæta ræðusnillingum úr öllum áttum í léttri og skemmtilegri ræðukeppni.
Þeir sem vilja vita meira og fylgjast með í sumar er bent á að skoða Þrasið/MORFÍN á facebook:)
Kv. Aðstandendur Þrassins
Margrét Sveinsdóttir
Vikan 06. - 12. september
Mán. 06. september
Magnaður mánudagur
kl. 11:10
kl. 11:10
Mið. 08. september
Ísbíll
kl. 11:10
kl. 11:10
Fös. 10. september
Busaferð
kl. 17:00
kl. 17:00
Lau. 11. september
Busaferð
kl. 13:00
kl. 13:00
Vikan 13. - 19. september
Mið. 15. september
Vox Scholae
kl. 21:00
kl. 21:00
Afmæli





Björn Hjörvar
Guðrún Ingibjörg